laugardagur, júní 06, 2009

10 ára reunion 13. júní - nánari upplýsingar

Kæru samnemendur

Jæja, þá er komið að því. Hér eru nánari upplýsingar um reunionið okkar sem er í næstu viku. Við ætlum að sjálfsögðu öll að mæta, rifja upp gamlar og góðar og passlega vandræðalegar sögur, eta, drekka og hafa stuð. 

Við þurfum að vita á mánudaginn n.k. í síðasta lagi (8. júní) hverjir ætla að koma svo við getum gert salnum viðvart um fjölda.

Staðsetning: Iðusalir 3. hæð (Lækjargata)

Tími: Laugardagurinn 13. júní kl. 21:00-01:00

Veitingar: Innifalið í verði er 1 drykkur (bjór, vín og gos) og léttar veitingar (fyrstir koma fyrstir fá). Þetta er ekki kvöldmatur heldur létt nasl. Við mælum með að bekkirnir hittist fyrir reunionið og borði saman. Munið bara að mæta tímanlega á svæðið.

Dagskrá: Verður með óformlegra móti þó hefur heyrst af eftirfarandi dagskrárliðum:
Kvartettinn Djúsí munu taka lagið
Myndasýning
Faunumyndir
DJ-Jói heldur uppi stuðinu með gömlum og nýjum lögum

Verð: 3.500 kr. Innifalið í verði eru leiga á sal og þjónusta, kostnaður við dagskrá, veitingar og gjöf til skólans. Hefð er fyrir því að afmælisárgangar gefi skólanum gjöf. Hugmyndin er að gjöfin frá okkur renni í endurbætur á Selinu en þær hafa staðið yfir í nokkur ár og er ýmislegt sem á enn eftir að klára. Upphæð styrkjar ræðst af þátttöku. 

Skráning á reunionið fer fram í gegnum síðu árgangsins á Facebook og hjá bekkjarráðsmönnum. Skráning er bindandi og greiða verður fyrirfram. Rn. 513-26-7499 kt. 140279-4129. Munið að setja nafn, kennitölu og bekk með færslunni. Bekkjarráðsmenn munu sjá um að dreifa aðgangsmiðum.

Flestir bekkir eru komnir með sitt svæði á Facebook.

Hlökkum til að sjá sem flesta, 

Bestu kveðjur,
Ástríður Jónsdóttir 6-A s.867 2859

Comments: Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?